Hugmyndir ríkisins óviðunandi

KVH skorar á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra að beita sér fyrir …
KVH skorar á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra að beita sér fyrir lausn mála svo ekki þurfi að koma til ófriðar að nýju á opinberum vinnumarkaði. mbl.is/Eggert

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga krefst þess að ríkið gangi nú þegar til samninga við KVH, en kjarasamningur hefur nú verið laus í rúmlega hálft ár. Félagið segir að hingað til hafa hugmyndir samninganefndar ríkisins um launahækkanir verið með öllu óviðunandi fyrir 500 félagsmenn KVH. 

Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á fjölmennum fundi félagsmanna KVH í dag. 

Hún er svohljóðandi:

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga krefst þess að ríkið gangi nú þegar til samninga við KVH, en kjarasamningur hefur nú verið laus í rúmlega hálft ár. 

Fyrir liggja bæði ítarlegar tillögur KVH og niðurstaða Gerðardóms, sem kvað upp úrskurð sinn 14. ágúst s.l. um laun og forsendur launabreytinga mikils fjölda háskólamanna sem starfar hjá ríkinu.

Afturvirkar launabreytingar hafa þegar tekið gildi hjá þeim háskólamönnum sem heyra undir Gerðardóm og vinna í mörgum tilfellum sambærileg störf og félagsmenn KVH hjá ríkinu.

Hingað til hafa hugmyndir samninganefndar ríkisins um launahækkanir verið með öllu óviðunandi fyrir þá 500 félagsmenn KVH sem sinna mikilvægum störfum á ríkisstofnunum og í engu sambærilegar við niðurstöðu Gerðardóms eða þær forsendur sem löggjafinn setti honum.

KVH skorar á fjármálaráðherra að beita sér fyrir lausn mála svo ekki þurfi að koma til ófriðar að nýju á opinberum vinnumarkaði.  Vísar KVH í því sambandi til orða fjármálaráðherra í viðtali við RUV frá 15. ágúst s.l. þar sem hann segist vona að niðurstaða Gerðardóms „verði grundvöllur að meiri friði á vinnumarkaði en verið hefur“.“  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert