Það var nóg um að vera í Hússtjórnarskóla Reykjavíkur við Sólvallagötu á föstudaginn þar sem fram fór sláturgerð. Þegar mbl.is bar að garði voru nemendur skólans á fullu við að skera mör og sauma vambir. Þeir sem mbl.is ræddi við fannst erfiðast að sauma vambirnar en að skera nýrun var „ógeðslegast“ því það var svo blóðugt.