Vefur Landsbankans kominn í lag

mbl.is

Vefsíða Landsbankans er komin upp aftur eftir að hafa legið niðri um tíma seinni partinn. Ekki liggur fyrir hvað olli því en bráðabirgðasíða var sett upp á meðan vefsíðan lá niðri þar sem kom fram að hún væri ekki aðgengileg í augnablikinu.

Uppfært 23:00: Landsbankinn hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna málsins: „Vefur Landsbankans var ekki aðgengilegur í um klukkustund og truflun varð á innskráningum í netbanka vegna bilunar. Bilunin varð um kl. 17.50 og vefurinn var kominn í lag um kl 18.50. Landsbankinn biðst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka