Biðla til almennings um aðstoð

Leit að Herði Björnssyni heldur áfram í dag en hans hefur verið saknað frá 14. október sl. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og björgunarsveitir Landsbjargar munu leita á höfuðborgarsvæðinu og óska eftir aðstoð almennings.

Er fólk vinsamlegast beðið um að hringja í 112 ef það verður Harðar vart, en fyrir neðan má sjá tilkynningu sem birt verður á samfélagsmiðlum og heimasíðum lögreglu og björgunarsveitanna.

„Leit að Herði Björnssyni, 25 ára, heldur áfram í dag en hans hefur verið leitað undanfarna eina og hálfa viku. Í dag mun mikill fjöldi björgunarsveitamanna Slysavarnarfélagsins Landsbjargar leita Harðar á höfuðborgarsvæðinu og óskum við eftir því að íbúar á svæðinu leggi okkur lið við leitina. Sérstaklega óskum við þess að fólk leiti í görðum sínum og nærumhverfi, en einnig þeim svæðum sem því finnst koma til greina. Ef fólk verður Harðar vart er það beðið um að tilkynna það strax í 112.

Hörður er 188 cm á hæð, grannur, ljóshærður og með rautt skegg. Síðast er vitað um ferðir hans á Laugarásvegi í Reykjavík um kl. 04:00 þann 14. október sl. Hörður er ekki talinn hættulegur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert