Gleðin skein af Jóakim Danaprins og Marie prinsessu, eiginkonu hans á Hótel Holti í kvöld. Þar sóttu þau hátíðarkvöldverð Dansk-Islandsk Samfund. Hjónin sátu meðal annars til borðs með Vigdísi Finnbogadóttur og Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Jóakim Danaprins og eiginkona hans Marie prinsessa skoðuðu Reykjavík í morgun og komu m.a. við í Hörpu þar sem þau kynntu sér húsið og starfsemi þess. Því næst skelltu þau sér í Skeifuna þar sem verslun Epal er. Ekki var annað að sjá en að þau kynnu vel við sig í Hörpu
Frétt mbl.is: Kóngafólkið skoðar sig um (myndskeið)