Lét ófriðlega í Leifsstöð

Þrír þóttu of ölvaðir til að fljúga og þurftu að …
Þrír þóttu of ölvaðir til að fljúga og þurftu að ræða við lögreglu. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Á síðustu dögum hefur Lögreglan á Suðurnesjum þurft að hafa afskipti af þremur einstaklingum sem vísað var úr flugi vegna ölvunar. 

„Tveir karlmenn sem áttu bókað flug til Gdansk fengu ekki að fara með vélinni af þessum sökum samkvæmt ákvörðun flugstjóra,“ segir í tilkynningu lögreglu. Þar kemur jafnframt fram að þeir hafi gist á lögreglustöðinni í Keflavík að eigin ósk.

„Sá þriðji lét ófriðlega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem honum hafði verið synjað um að fara um borð í flugvél vegna ölvunar og var hann ósáttur. Hann sættist á að fá flugmiða sínum breytt og láta renna af sér.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert