Héraðsdómur Suðurlands hefur, að kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi, úrskurðað kínverskan ríkisborgara til að sæta áframhaldandi farbanni til föstudagsins 22. apríl n.k.
Maðurinn var ökumaður bifreiðar sem lenti í árekstri við aðra bifreið á einbreiðri brú yfir Hólá á þjóðvegi 1 í Skaftafellssýslu þann á öðrum degi jóla á síðasta ári. Ökumaður þeirrar bifreiðar lést af áverkum sem hann hlaut við áreksturinn.
Ákæra gegn manninum hefur verið gefin út og var mál hans þingfest s.l. föstudag í héraðsdómi Suðurlands.
Frétt mbl.is: Í farbann vegna banaslyss