Þingið banni bónusgreiðslur til bankamanna

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir faraldur græðgi ganga yfir landið.
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir faraldur græðgi ganga yfir landið. mbl.is/Eggert

Þingmaður Framsóknarflokksins vill að Alþingi íhugi að afnema með lögum kaupaukagreiðslur til stjórnenda banka hér á á landi. Slíkar greiðslur séu venjulegu fólki óskiljanlegar og ljóst sé að faraldur græðgi gangi nú yfir Ísland.


„Græðgi er einn af höfuðlöstum mannskepnunnar, og það virðist svo sem að faraldur þess lastar gangi yfir Ísland. Bæði sjáum við þess dæmi að menn eru jafnvel að slá lán til þess að greiða sjálfum sér arð og henda afleiðingunum fram í tímann á ofurvöxtum,“ sagði Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sem ræddi bónusgreiðslur til bankastjórnenda á Alþingi í dag.

Hann segir að greiðslurnar séu úr öllum takti við íslenskan veruleika. Þarna sé um að ræða stjórnendur banka sem hafi verið endurreistir með aðkomu ríkisins. 

Reiðubúinn að taka þá áhættu að bankamenn yfirgefi Ísland

„Okkur er sagt að þetta sé alþjóðlegt samkeppnisumhverfi sem kalli á þessar greiðslur. Nú er það þannig, herra forseti, að mér er ekki kunnugt um - og ég náttúrulega veit ekki allt - marga íslenska bankamenn sem hafa farið úr landi og tekið við góðum stöðum í stórum bönkum erlendis. Herra forseti, ég er reiðubúinn að taka áhættuna á því að hér verði spekileiki meðal bankamanna, og þeir streymi til útlanda og fari að vinna í erlendum stórbönkum. Svo illa vill til, að það eru rúmlega 200 viðskiptamenntaðir menn á atvinnuleysisskrá á Íslandi og þeir geta örugglega hlaupið í skarðið fyrir laun sem samrýmast íslenskum veruleika,“ sagði Þorsteinn.

Hann sagði að Alþingi hefði sett lög á síðasta ári til að koma böndum á bónusgreiðslur.

„Í ljósi nýorðinna atburða þá gæti verið nauðsynlegt fyrir okkur að taka þessa lagasetningu upp. Að breyta þessu og afnema með öllu með lögum bónusgreiðslur til bankamanna, það er að segja til stjórnenda banka, vegna þess að þessi faraldur græðgi sem gengur hér yfir þjóðfélagið þessa dagana, hann er með öllu óþolandi og hann þarf að stöðva. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert