Magnús ráðinn ritstjóri Vesturlands

Magnús Þór hefur verið ráðinn ritstjóri blaðsins Vesturland.
Magnús Þór hefur verið ráðinn ritstjóri blaðsins Vesturland. Mynd/Magnús Þór Hafsteinsson

Magnús Þór Hafsteinsson hefur verið ráðinn ritstjóri blaðsins Vesturland sem gefið er út af Pressunni. Blaðið verður fyrst um sinn gefið út tvisvar í mánuði og dreift frítt á öll heimili og í fyrirtæki á Vesturlandi, í Kjós og á Kjalarnesi.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Magnús Þór hefur um árabil starfað sem blaða- og fréttamaður á Íslandi og í Noregi. Hann var blaðamaður við norska sjávarútvegsblaðið Fiskaren, starfaði sem fréttaritari Rúv í Noregi, auk þess sem hann vann á fréttastofum sjónvarps og útvarps Rúv um árabil.

Magnús sat á Alþingi 2003-2007. Undanfarin ár hefur hann  sinnt ritstörfum og eftir hann liggja bækur um sögu seinni heimsstyrjaldar sem hlotið hafa góðar viðtökur. Síðastliðin tvö ár hefur Magnús Þór starfað sem blaðamaður á héraðsfréttablaðinu Skessuhorni. Hann  er menntaður í sjávarútvegsfræðum og er með meistaragráðu í fiskifræði frá Háskólanum í Björgvin í Noregi.

„Vel í stakk búinn“

„Síðustu misserin hef ég unnið sem blaðamaður á Vesturlandi. Í gegnum þau störf hef ég aflað mér mikillar þekkingar á landshlutanum og orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast fjölmörgu góðu fólki. Vesturland og svæðið beggja vegna Hvalfjarðar eru afar fjölbreytt og spennandi svæðis sem búa yfir miklum möguleikum til framtíðar,“ segir Magnús Þór í tilkynningunni. „Ég tel mig vel í stakk búinn að mæta nú til leiks sem ritstjóri Vesturlands og hlakka til þess að leggja mitt ýtrasta af mörkum til að skapa frískt og öflugt héraðsfréttablað.“

Útgefandi Vesturlands er Björn Ingi Hrafnsson og framkvæmdastjóri er Arnar Ægisson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert