Vissu ekki um gjaldtöku

Í Reynisfjöru.
Í Reynisfjöru. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Áform leigutaka sem reka veitingastaðinn Svörtufjöru við Reynisfjöru í Mýrdalshreppi um að hefja gjaldtöku á bílastæðum við veitingastaðinn komu flatt upp á aðra landeigendur þegar þau voru tilkynnt í gær.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir einn landeigenda, Bryndís Harðardóttir, að á þriðja hundrað manns eigi landið við Reynisfjöru í sameign en eins og fram hefur komið er fjaran vinsæll áfangastaður ferðamanna.

„Þeir eru með leigusamning á bílastæðinu og reka Svörtufjöru. En það hefur enginn fundur verið haldinn af hálfu rekstaraðila um málið,“ segir Bryndís. Hún segir það ekki víst að landeigendur séu á móti þessu en það hljóti að vera sjálfgefið að halda fund með landeigendum áður en farið sé í þessa vegferð.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert