Rifu húsið „í góðri trú“

Svona mun götumyndin líta út eftir að framkvæmdum lýkur.
Svona mun götumyndin líta út eftir að framkvæmdum lýkur. Mynd/Aðsend

Fyrirtækið Mannverk hefur beðið Minjastofnun, byggingaryfirvöld og almenning afsökunar á skorti á aðgát við framkvæmdir á byggingareit við Tryggvagötu 10-14.

Í yfirlýsingu frá Mannverki vegna niðurrifs hins svokallaða Exeter-húss segir að ljóst sé að fyrirtækið hefði átt að leita eftir nánara samstarfi við Minjastofnun um aðferð við framkvæmdirnar áður en sú leið var farin að fella húsið, samtímis því að safna úr því hlutum til endurbyggingar þess.

„Mannverk lofar því að húsið sem um ræðir verði endurbyggt. Það hefur ávallt staðið til, enda er það í samræmi við samþykkta aðaluppdrætti og deiliskipulag sem var unnið í nánu samstarfi við Minjastofnun og skipulagsyfirvöld,“ segir í yfirlýsingunni.

Frétt mbl.is: Húsið rifið án leyfis

Töldu sig vera innan heimilda

„Starfsmenn Mannverks töldu sig vera innan heimilda við framkvæmdina og voru í góðri trú um að þessi leið væri heimil og nauðsynleg við endurbyggingu hússins. Nú hefur komið skýrt í ljós að opinberir aðilar hafa annan skilning á því hvernig framkvæmdin átt að fara fram. Málið er nú til skoðunar og fyrirtækið mun veita allar nauðsynlegar upplýsingar og aðstoð við framgang málsins.“

Fram kemur að hið endurbyggða hús verði að framkvæmdunum loknum sem næst þeirri mynd sem það var í þegar það var byggt árið 1904. Notast verður við byggingarmáta og aðferðir þess tíma.

Hér má finna frekari upplýsingar um framkvæmdina. 

„Mikilvægir hlutar hússins voru teknir til hliðar, s.s. hluti burðarvirkis og gluggar, og verða þeir nýttir eftir fremsta megni við endurbyggingu hússins. Í teikningunum er þess gætt að raska ekki heildarsvip götumyndarinnar og að endurbygging eldri húsa og nýbyggingar haldist í hendur. Við hönnunina var leitast við að auka gæði svæðisins og skila endurbyggðum húsum í upprunalegri mynd í bland við fallegar nýbyggingar.“

„Stigum feilspor“

Hjalti Gylfason, framkvæmdastjóri Mannverks, segir í yfirlýsingunni: „Það er ljóst að við stigum feilspor og við erum öll mjög leið yfir því. Við viljum njóta trausts og munum draga ríkan lærdóm af þessu máli.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert