„Pínulítið löng“ bílalest

Björgunarsveitarbílar fylgja bílalestinni úr Staðarskála og yfir Holtavörðuheiði.
Björgunarsveitarbílar fylgja bílalestinni úr Staðarskála og yfir Holtavörðuheiði. mbl.is

Meðlimir björgunarsveitarinnar Húna stóðu í ströng í gærkvöldi og nótt við að aðstoða fólk sem sat fast á Holtavörðuheiði. Svo tók við annað verkefni, að fylgja „pínulítið langri“ bílalest yfir heiðina.

Heiðinni var lokað fyrir umferð á sjötta tímanum í gærkvöldi og tugir manna þurftu að hafast við í Staðarvatnsskála. Milli kl. 22 og 23 var svo ákveðið að björgunarsveitarmenn og starfsmenn Vegagerðarinnar myndu fylgja hópnum yfir heiðina.

Á ekki að koma sumar á sumardaginn fyrsta? Spyrja björgunarsveitarmenn Húna á Facebook-síðu sinni. Hér að neðan er myndband sem þeir birtu af bílalestinni að fara yfir heiðina í nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert