Tveir fluttir á slysadeild

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Tilkynnt um umferðarslys á Reykjanesbraut við Sprengisand í gærkvöldi þar sem bifreið var ekið aftan á aðra. Tveir fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Málið í rannsókn að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Undir áhrifum og réttindalaus

Um klukkan hálf átta í gærkvöldi hafði lögregla afskipti af ökumanni sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í ljós kom að ökumaðurinn var einnig réttindalaus, en var hann þó látinn laus eftir sýnatöku. 

Einnig voru afskipti höfð af tveimur aðilum í gærkvöldo vegna vörslu fíkniefna en málin voru afgreidd með skýrslutöku á vettvangi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert