Yfirvinnubann hefur áhrif í nótt

AFP

Vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra verður þjónusta á Keflavíkurflugvelli aftur takmörkuð við sjúkra- og neyðarflug frá 02:00 í nótt til 07:00 í fyrramálið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

„Ástæðan er að tveir flugumferðarstjórar sem áttu að vera á vaktinni í nótt eru veikir og vegna yfirvinnubanns fást ekki flugumferðarstjórar til afleysinga. Meðan á takmörkuninni stendur eru 16 flugvélar áætlaðar til komu frá Norður-Ameríku og átta til brottfarar til Evrópu,“ segir í tilkynningunni.

Þeim farþegum sem eiga bókað flug á þessum tíma er bent á að fylgjast með flugáætlunum á Kefairport eða vef síns flugfélags.

Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) og Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Isavia standa í kjaraviðræðum og hefur þeim verið vísað til ríkissáttasemjara. Viðræður hafa staðið yfir frá því í nóvember en síðasti fundur var haldinn 20. maí. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til næsta fundar í viðræðunum.

Yfirvinnubann FÍF hefur staðið yfir frá 6. apríl síðastliðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert