Karlmaður á fimmtugsaldri liggur á gjörgæslu eftir harðan þriggja bíla árekstur á Öxnadalsheiðinni um tíuleytið í morgun.
Einn lést í slysinu sem varð er bíll var að taka fram úr annarri bifreið í þann mund er lítil rúta á norðurleið kom á móti bílunum. Bifreiðin sem var að fara fram úr valt út af veginum, en rútan og hinn bíllinn skullu saman.
Karlmaðurinn sem nú dvelur á gjörgæslu var ökumaður í annarri bifreiðinni. Hann var upphaflega fluttur til Akureyrar en tekin var ákvörðun um að flytja hann með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Kona úr hinni bifreiðinni dvelur enn á Sjúkrahúsinu á Akureyri undir eftirliti en er þó ekki talin alvarlega slösuð.
Í rútunni voru 12 farþegar auk bílstjóra. Allir voru þeir útskrifaðir af Sjúkrahúsinu á Akureyri eftir skoðun.
Fréttir mbl.is
Öxnadalsheiði hefur verið opnuð