Skoða samning við Breta

Bretland er eitt mikilvægasta viðskiptaland Íslands.
Bretland er eitt mikilvægasta viðskiptaland Íslands. AFP

Forsætisráðuneytið segir að stjórnvöld skoði nú möguleika á gerð tvíhliða efnahags- og viðskiptasamnings milli Íslands og Bretlands í kjölfar ákvörðunar Breta að segja skilið við Evrópusambandið. Einnig er verið að skoða hvernig hagsmunir Íslands verði best tryggðir í framhaldi af útgöngusamningi sem Bretland og Evrópusambandið munu væntanlega gera.

Ráðuneytið bendir á að vinna við útgöngu Breta úr ESB sé rétt að hefjast. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu, en ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum í morgun ákvörðun Breta að ganga úr ESB.

Þar segir að Bretland sé eitt mikilvægasta viðskiptaland Íslands og grundvallist samskiptin á EES-samningnum. Löndin vinni náið saman á ýmsum sviðum, t.d. að löggæslu-, samgöngu-, búsetu- og menningarmálum. Þá sé gott samstarf milli Íslands og Bretlands á sviði öryggis- og varnarmála. Því sé mikilvægt að tryggja áfram góð samskipti landanna.   

„Í ljósi þess ákvað ríkisstjórnin að utanríkisráðherra tæki málið upp á ráðherrafundi EFTA í Sviss á sunnudaginn. Þar verði áhersla lögð á mikilvægi þess að EFTA-ríkin njóti áfram jafn góðra viðskiptakjara gagnvart Bretlandi og nú. Samhliða þessu mun utanríkisráðuneytið kanna aðrar leiðir að sama markmiði fyrir Ísland, þ.m.t. möguleikann á gerð tvíhliða efnahags- og viðskiptasamnings milli Íslands og Bretlands. Einnig er verið að skoða hvernig hagsmunir Íslands verði best tryggðir í framhaldi af útgöngusamningi sem Bretland og Evrópusambandið munu væntanlega gera.

Þá hefur starfshópur ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis, utanríkisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og velferðarráðuneytis verið skipaður til að samræma viðbrögð og aðgerðir. Hópurinn mun vinna með öðrum ráðuneytum og hagsmunaaðilum eftir þörfum. Utanríkisráðuneytið mun einnig fela óháðum aðila að meta efnahagslegar afleiðingar einstakra kosta vegna framtíðarviðskipta milli þjóðanna.

Ljóst er að vinna við útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu er rétt að hefjast. Ekki verða breytingar á viðskiptasamningum eða öðrum samskiptum Íslands og Bretlands á meðan sú vinna er í gangi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert