Icelandair hefur bætt við áætlun sína tveimur aukaferðum til Parísar vegna leiks Íslands og Frakklands í átta liða úrslitum EM 2016. Flogið verður með 183 sæta Boeing 757-vél Icelandair frá Keflavíkurflugvelli síðdegis á föstudag og síðdegis á laugardag.
Jafnframt verður bætt við tveimur ferðum frá París á mánudagsmorgni og þriðjudagsmorgni. Þessar ferðir verða hluti af almennu leiðakerfi Icelandair og eru komnar í sölu á vef Icelandair, að því er fram kemur í tilkynningu.
Ef þörf er á mun Icelandair einnig leigja breiðþotu og bæta við fleiri ferðum til Parísar fyrir leikinn í París.
Þá er rétt að taka fram að Icelandair mun ekki hafa tök á að bjóða upp á pakkaferðir með aðgöngumiðum, gistingu o.s.frv. í tengslum við leikinn, segir ennfremur.