15 sæti eftir í leiguflugi Grétars

Grétar hefur tryggt sér leiguvél á leikinn í París. Ferðin …
Grétar hefur tryggt sér leiguvél á leikinn í París. Ferðin gengur þó einungis eftir ef fullbókað verður í vélina. Samsett mynd

Selja þarf 15 sæti til viðbótar í leiguflugið á vegum Grétars Sigfinns Sigurðarsonar frá Reykjavíkurflugvelli til Frakklands á næstu klukkutímum til þess að ferðalagið verði að veruleika. Greiða þarf fyrir opnun skrifstofu leiguflugfélagsins í fyrramálið en búið er að selja um 85 sæti af þeim 100 sem eru til sölu.

Um dags­ferð er að ræða en farið veður frá Reykja­vík­ur­velli klukk­an sjö á sunnu­dags­morg­un­inn og brott­för frá Par­ís er klukk­an þrjú aðfaranótt mánu­dags. Grét­ar ætlaði að bjóða upp á sam­bæri­lega ferð á leik Íslands og Eng­lands í Nice í síðustu viku en það gekk að lok­um ekki upp vegna seina­gangs með greiðslur hjá þeim sem áttu bókað flug

Í samtali við mbl.is segir Grétar að áhugasamir geti haft við sig til að tryggja sér miða í vélinni en flugmiðar fram og til baka kosta 154.900 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert