Hleypt inn í hollum

Treyjur Íslenska landliðsinns komnar í verslanir. Biðröð myndaðist fyrir utan …
Treyjur Íslenska landliðsinns komnar í verslanir. Biðröð myndaðist fyrir utan Jóa Útherja. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hleypa þurfti fólki inn í hollum í versluninni Jóa útherja núna í kvöld þegar sérstaklega var opnað var vegna sölu á landsliðstreyjum. Verslunin fékk á bilinu 4-500 treyjur og segir Valdimar Pétur Magnússon, eigandi verslunarinnar, að líklegast muni þær allar seljast upp á um einni klukkustund. Sett var hámark ein treyja og ein barnatreyja á hvern viðskiptavin sem kom.

Þegar ljósmyndara mbl.is bar að garði náði röðin upp í Síðumúla og mikill fjöldi hafði bæst við síðan klukkustund fyrr þegar um 50 manns biðu.

Treyjur Íslenska landliðsinns komnar í verslanir. Biðröð myndaðist fyrir utan …
Treyjur Íslenska landliðsinns komnar í verslanir. Biðröð myndaðist fyrir utan Jóa Útherja. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Valdimar, sem sjálfur er úti á landi og segist hafa fjarstýrt sölunni í gegnum síma í allan dag, segir að þetta sé ástand sem hreinlega þekkist ekki. „Við erum að reyna að gera okkar besta,“ segir hann og bætir við: „Við vildum opna í kvöld og gera okkar besta að koma þessu út.“

Segir hann að ef einhver afgangur verði eða þeir fái fleiri treyjur muni þeir opna á morgun klukkan þrjú. Fleiri búðir fengu einnig sendingu frá umboðinu og verða þær væntanlega opnar á hefðbundnum tíma á morgun.

Jói útherji opnaði sérstaklega í kvöld til að selja treyjurnar.
Jói útherji opnaði sérstaklega í kvöld til að selja treyjurnar. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Hann segir að fjöldi fólks hafi undanfarna daga beðið þá að taka frá treyjur, en það hafi verið ákveðið að segja nei við alla og notast við fyrstur-kemur-fyrstur-fær þegar þeir opnuðu í kvöld.

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Mikill fjöldi mætti í biðröðina.
Mikill fjöldi mætti í biðröðina. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert