„Hafa gert alla Wales-búa stolta“

Velski knattspyrnumaðurinn Liam Killa sem spilar nú með Hamri í Hveragerði segir að framganga velska landsliðsins hafi gert alla Wales-búa stolta. Hann æfði með landsliðs- og Liverpool-manninum Joe Allen í yngri flokkunum og segir hann vera einn mikilvægasta leikmann liðsins.

Þrátt fyrir að vera mikill aðdáandi Ronaldo í portúgalska liðinu sem mætir því velska í kvöld segir Killa að Gareth Bale hafi sýnt fram á það í mótinu að hann sé heilsteyptari leikmaður en sá portúgalski. Killa er bjartsýnn á að Wales nái í úrslitaleikinn og spáir liðinu 2-0 sigri í kvöld.

mbl.is ræddi við Liam Killa um leikinn mikilvæga í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert