Féll í á við Sveinsgil

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert

Björgunarsveitirnar frá Hellu að Kirkjubæjarklaustri hafa verið kallaðar út vegna manns sem féll í á við Sveinsgil klukkan rétt rúmlega 18. Tveir menn voru á göngu þegar þeir fellu báðir út í. Annar þeirra komast upp úr af sjálfsdáðum en hinn maðurinn ekki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Fjölmargir björgunarsveitarbílar eru farnir af stað með leitarfólki og fleiri eru að undirbúa sig til farar.

Þyrla Landhelgisgæslunnar er einnig farin af stað og verður komin á slysstað fljótlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert