Allar upplýsingar veittar

Páley Borgþórsdóttir.
Páley Borgþórsdóttir.

Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún segir að um komandi Verslunarmannahelgi verði allar upplýsingar er varða verkefni lögreglu veittar um leið og talið er að þær skaði hvorki rannsóknarhagsmuni né velferð brotaþola.

Tilkynning lögreglustjóra fylgir á hæla mikillar umræðu um ákvörðun hennar að beina tilmælum til viðbragðsaðila um að veita ekki upplýsingar um kynferðisbrot.

Páley segir m.a. að umræða um að leyna eigi upplýsingum um kynferðisbrot eða draga úr hófi að veita þær, sé með öllu á misskilningi eða vanþekkingu byggð. Lögreglan í Vestmannaeyjum hvetji fjölmiðla og fólk almennt til að ræða sína á milli um þann stóra samfélagslega vanda sem kynferðisofbeldi sé.

Tilkynning lögreglustjóra í heild

Að gefnu tilefni vil ég undirrituð ítreka eftirfarandi:

Lögreglan í Vestmannaeyjum miðlar öllum upplýsingum um verkefni sín svo hratt og örugglega sem mögulegt er hverju sinni.  Sama verklag er haft allt árið og tekur það eingöngu mið af rannsóknarhagsmunum og velferð mögulegra fórnarlamba.  Um komandi Verslunarmannahelgi verða allar upplýsingar veittar um leið og talið er að það skaði hvorki rannsóknarhagsmuni né velferð brotaþola.  Undir þetta falla upplýsingar um fjölda brota, eðli þeirra og allar aðrar þær upplýsingar sem almennt eru veittar.

Umræða um að leyna eigi upplýsingum um kynferðisbrot eða draga úr hófi að veita þær eru með öllu á misskilningi eða vanþekkingu byggð.  Þvert á móti verða allar upplýsingar veittar svo fljótt sem verða má þegar búið er að tryggja velferð fórnarlamba og rannsóknarhagsmuni.

Lögreglan í Vestmannaeyjum hvetur fjölmiðla og fólk almennt til að ræða sín á milli um þann stóra samfélagslega vanda sem kynferðislegt ofbeldi er.  Ábyrgðin er í öllum tilvikum gerandans og þangað þarf að skila skömminni.

Páley Borgþórsdóttir

Lögreglustjóri í Vestmannaeyjum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert