Jón Þór Ólafsson býður sig fram í prófkjöri Pírata í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar í haust. Jón Þór varð þingmaður Pírata eftir að hann var kjörinn á þing í kosningunum 2013 en lét af þingmennsku í fyrra eftir hálft kjörtímabil. Ásta Helgadóttir tók þá sæti Jóns Þórs á þingi.
Í framboðslýsingu Jóns Þórs á heimasíðu Pírata kemur fram að stór þingflokkur muni hafa gagn af sér á þingi í fyrstu.
„Það er ekki nauðsynlegt, en minni tími tapast og fleiri tækifæri nýtast,“ segir í framboðslýsingunni.
Mbl.is ræddi við Jón Þór fyrr í mánuðinum og sagðist hann þá að vera að íhuga framboð.
„Ef þú þekkir ekki leikreglurnar á þingi þá tapast gríðarlegur tími og tækifæri. Ég hef sagt að ef þetta verður stór þingflokkur þá muni ég gefa kost á mér til þings, kannski bara í eitt ár. Ég held það taki ekki meira en ár að koma nýjum þingflokki inn í leikreglurnar,“ sagði Jón Þór þá.