Fimm erlendir ferðamenn óku of hratt

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sex ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur af lögreglunni á Suðurlandi í dag. Fimm þeirra voru erlendir ferðamenn og sá sem ók hraðast var á 134 km hraða á klukkustund.

Borgaði hann sektina á staðnum en hann var handsamaður skammt frá Höfn í Hornafirði.

Hinir fimm ökumennirnir voru stöðvaðir af lögreglunni víðs vegar um Suðurland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert