Framkvæmdir í Austurstræti

Nú standa yfir framkvæmdir í Austurstræti. Þar sem verið er að endurgera yfirborð akbrautar Austurstrætis frá Pósthússtræti að Ingólfstorgi þá verður yfirborð akbrautar Veltusunds frá Austurstræti að Hafnarstræti endurnýjað.

Núverandi steinlögn verður tekin upp og fjarlægð, yfirborð jafnað undir nýja steinlögn og nýr steinn lagður. Farið verður yfir snjóbræðslu og hún löguð þar sem þörf er á.

Samkvæmt upplýsingum frá borginni eru áætluð verklok hinn 20. nóvember.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert