Mikilvægt að tilkynna aukaverkanir lyfja

Fólk er hvatt til að tilkynna aukaverkanir lyfja.
Fólk er hvatt til að tilkynna aukaverkanir lyfja. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Lyfjastofnun tekur þátt í evrópsku samstarfsverkefni sem snýr að því að efla vitund fólks um mikilvægi þess að tilkynna lyfjayfirvöldum um aukaverkanir lyfja. 

Lyfjastofnun hefur opnað Facebook-síðu til að efla upplýsingamiðlun og samskipti við almenning.

Lyfjastofnanir frá 22 löndum taka þátt í verkefninu sem kallað er SCOPE og er fjármagnað af Evrópusambandinu. Aðalmarkhópur verkefnisins er almenningur, en upplýsingum um verkefnið og áherslum þess er einnig beint til heilbrigðisstarfsfólks.

Lyfjastofnun hefur látið gera myndband sem skýrir hvers vegna mikilvægt er að tilkynna um aukaverkanir lyfja til stofnunarinnar og hvernig eigi að bera sig að. Á vef Lyfjastofnunarinnar má einnig lesa stutta grein með greinargóðum upplýsingum og ráðum til almennings og heilbrigðisstarfsfólks þar sem fjallað er um aukaverkanir lyfja og tilkynningar um þær.

Myndbandið má sjá hér að neðan:

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert