Vel tókst til með Jólakaffi Hringsins sem haldið var í Hörpu í dag en yfir 900 manns mættu til að skemmta sér og styrkja málefnið. „Það var alveg frábært. Yfirfullt alveg hreint og setið og tvísetið í hverju sæti,“ sagði Sonja Egilsdóttir, formaður Hringsins.
Frétt mbl.is: Kaffihlaðborð fyrir 900 manns
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var hlaðborðið sneisafullt af kræsingum og mikil stemmning meðal gesta. „Það var mikil stemmning og skemmtileg atriði,“ sagði Sonja.
Sonja segir vel hafa tekist til við söfnunina. „Á þessu ári erum við búin að styrkja fyrir 65 milljónir og nú getum við gert enn þá betur.“