Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur að rannsókn á meintri frelsissviptingu í Fellsmúla. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið síðan tveir menn voru handteknir og síðan sleppt úr haldi á fimmtudaginn.
Manni var haldið í gíslingu í íbúð í Fellsmúla í tvo sólarhringa en hann komst undan á miðvikudag með því að klifra á milli svala. Rannsókn málsins miðar að því hvort um frelsissviptingu hafi verið að ræða.
Frétt mbl.is: Gaf sig fram við lögreglu
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn á rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti í samtali við mbl.is að búið væri að yfirheyra parið sem hún óskaði eftir að ræða við fyrir helgi.
Nokkrir hafa verið yfirheyrðir en enginn handtekinn síðan á fimmtudag, eins og áður kom fram.