Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur hefur sent Michael Müller, borgarstjóra Berlínar, samúðarskeyti vegna atburðarins á jólamarkaðnum í Breitscheidplatz í gærkvöldi.
Skeytið er svohljóðandi:
Herra Michael Müller, borgarstjórinn í Berlín
Kæri borgarstjóri,
Fyrir hönd allra Reykvíkinga, vil ég votta þér mína dýpstu samúð vegna þeirra voveiflegu atburða sem áttu sér stað á jólamarkaðnum í Breitscheidplatz í gærkvöld.
Hugur okkar er hjá fórnarlömbunum, íbúum Berlínar og öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna þessara óskiljanlegu voðaverka.
Dagur B. Eggertsson
Mayor of Reykjavík