Skólarnir setji skýrar reglur

Í snjallsímanum.
Í snjallsímanum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Margrét María Sigurðardóttir umboðsmaður barna hafa sent öllum grunn- og framhaldsskólum, og fleiri aðilum, bréf um notkun nemenda á eigin snjalltækjum í skólunum.

Í bréfinu hvetja þau skólana til að setja skýrar reglur um notkun snjalltækja í skólastarfinu í samráði við aðila skólasamfélagsins og skýr viðurlög við brotum á þeim í samræmi við anda Barnasáttmálans, og þess regluverks og markmiða sem skólar vinna eftir hér á landi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá menningar- og menntamálaráðuneytinu.

„Vakin er athygli á almennum viðmiðunum um skólareglur þar sem meðal annars er kveðið á um að í þeim skuli setja ákvæði um notkun á rafeindatækjum í eigu skólanna, á tækjum sem nemendur koma með í skólann og um mynd- og hljóðupptökur á skólatíma og birtingu þeirra,“ segir m.a. í tilkynningunni.

Bréfið í heild:

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var lögfestur hér á landi árið 2013 og markaði það mikil tímamót í baráttunni fyrir réttindum barna, þar sem sáttmálinn felur í sér alþjóðlega viðurkenningu á því að börn séu sjálfstæðir einstaklingar með fullgild réttindi, óháð réttindum fullorðinna og tryggir hann öllum börnum upp að 18 ára aldri sérstaka vernd, umönnun og rétt til þátttöku.

Samkvæmt lögum um grunn- og framhaldsskóla, reglugerðum við lögin og aðalnámskrá skal starfsfólk ávallt bera velferð nemenda fyrir brjósti og leggja sig fram um að tryggja þeim menntun, öryggi, vellíðan og vinnufrið til að þeir geti notið skólagöngu sinnar og náð árangri í námi. Starfsfólki ber að stuðla að jákvæðum skólabrag og starfsanda í öllu skólastarfi og góðri umgengni.  Hver grunn- og framhaldsskóli setur sér skólareglur með skýrum viðbrögðum við brotum á reglunum og úrræði og viðbrögð skóla eiga að vera í samræmi við réttinda nemenda og eiga að stuðla að jákvæðri hegðun og miða að því að rækta persónuþroska og hæfni nemenda.

Í gildandi reglugerðum um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunn- og framhaldsskólum er m.a. kveðið á um að nemendum beri að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks skóla og fylgja almennum umgengnisreglum í samskiptum við starfsfólk og samnemendur og beri ábyrgð á eigin námi, framkomu sinni og samskiptum við samnemendur og starfsfólk skóla, þ.m.t. snjallsímum, rafrænum samskiptum og netnotkun og skulu sýna nærgætni og gæta virðingar í allri framkomu sinni. Vakin er athygli á að 2015 voru útbúin í samráði við aðila skólasamfélagsins  almenn viðmið um skólareglur, m.a. um að í skólareglum skuli setja ákvæði um notkun á rafeindatækjum sem skólinn á og tækjum sem nemendur koma með í skólann og um mynd- og hljóðupptökur á skólatíma og birtingu þeirra. Þessi viðmið má finna á upplýsingavef Sambands íslenskra sveitarfélaga og eru grunn- og framhaldsskólar hvattir til að nýta sér þau.
 http://www.samband.is/verkefnin/skolamal/grunnskoli/leidbeiningar-og-verklagsreglur/

Mennta- og menningarmálaráðherra og umboðsmaður barna hvetja alla grunn- og framhaldsskóla til að setja í samráði við aðila skólasamfélagsins skýrar reglur um notkun snjalltækja í skólastarfi og skýr viðurlög við brotum á þeim í samræmi við anda Barnasáttmálans og þess regluverks og markmiða sem skólar vinna eftir hér á landi.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert