Konan úrskurðuð látin

mbl.is/Sverrir

Konan, sem féll í sjóinn við Kirkjufjöru laust fyrir klukkan 13:00 í dag, er látin samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi. Konan var þýsk og á ferð hér á landi með eiginmanni sínum og tveimur börnum. Hún fannst skammt austan Dyrhólaeyjar og var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús í Reykjavík þar sem hún var úrskurðuð látin skömmu eftir komuna þangað. Ekki er unnt að birta nafn hennar að svo stöddu.

Frétt mbl.is: Búið að finna konuna

Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum lögreglunnar á Suðurlandi. „Mikið brim hefur verið með ströndinni á þessum slóðum nú og er lögreglu kunnugt um að í Reynisfjöru hafi allmargir a.m.k. vöknað í fæturna í dag. Af því tilefni ákváðu björgunarsveitarmenn sem komnir voru á vettvang slyssins að standa vakt í Reynisfjöru til myrkurs til að leiðbeina fólki um hættur þær sem fylgja briminu,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert