Lýsa eftir ökumanni hvíta bílsins

Hvíta bílnum var ekið vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði laugardaginn 14. …
Hvíta bílnum var ekið vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði laugardaginn 14. janúar kl. 12.24. Ljósmynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af ökumanni hvíts bíls sem var ekið vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði laugardaginn 14. janúar kl. 12.24.

Lögreglan tekur í tilkynningu sinni um málið skýrt fram að ökumaðurinn er ekki grunaður um neitt misjafnt. Hann gæti þó hugsanlega búið yfir upplýsingum sem kunna að nýtast lögreglu við rannsókn máls Birnu Brjánsdóttur.

Viti aðrir deili á bifreiðinni og ökumanni hennar eru hinir sömu beðnir um að koma þeim upplýsingum til lögreglu í síma 444 1000, í einkaskilaboðum á Facebook-síðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert