Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra Íslands, vottar fjölskyldu og ástvinum Birnu Brjánsdóttur samúð sína. Í færslu á Facebook-síðu sinni segir hann að lögreglan hafi unnið þrotlaust að rannsókn málsins með aðstoð landhelgisgæslu og björgunarsveita. Segir hann þau störf hafa verið vönduð og yfirveguð.
„Margir hafa lagt leitinni lið og veitt upplýsingar. Þetta sorglega mál hefur snert þjóðina, hreyft við okkur öllum og saman höfum við vonað að það fengi ekki þennan endi. En nú er Birna fundin og við sameinumst í sorginni,“ segir Bjarni.