Skipverjar Polar Nanoq senda fjölskyldu Birnu samúðarkveðjur

Polar Nanoq í Hafnarfjarðarhöfn í morgun.
Polar Nanoq í Hafnarfjarðarhöfn í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skipverjar um borð í grænlenska togaranum Polar Nanoq hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna rannsóknar lögreglu á andláti Birnu Brjánsdóttur. Þeir senda fjölskyldu Birnu innilegar samúðarkveðjur og segjast vera í áfalli.

Þetta kemur fram í yfirlýsingunni sem hefur verið send á fjölmiðla, en hún er á grænlensku, dönsku og íslensku. 

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

„Atburðurinn sorglegi hefur snortið okkur djúpt. Við skipverjar á Polar Nanoq viljum senda fjölskyldu Birnu Brjánsdóttur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Við vonum að hægt verði að upplýsa um atburðarásina sem fyrst, svo hægt verði að sækja sakamenn til saka.

Við skipverjar höfum orðið fyrir miklu áfalli sökum atburða síðustu daga. Það hefur verið erfitt fyrir okkur að gera okkur grein fyrir því hvernig við eigum að bregðast við ýmsu. Til dæmis hefur fjölskylda Birnu beðið okkur um að útskýra hvarf Birnu, en okkur hefur verið bannað að eiga samskipti út á við, auk þess sem við höfum ekki vitað, hvað hefur skeð. Við erum þakklátir fyrir að hafa getað hlúð að hver öðrum og fyrir stuðning fjölskyldu okkar og vinnuveitenda.

Við áhöfn skipsins, sem nú höfum safnast saman í einum bæ á Íslandi, komum beint um borð í skipið við komuna til Íslands laugardaginn 14. janúar. Það er mikilvægt fyrir okkur að taka fram, að við erum staddir á Íslandi vinnunnar okkar vegna.

Margar hugsanir hafa farið um hugann og það er mikilvægt fyrir okkur að segja, að um er að ræða einn til tvo einstaklinga, sem grunaðir eru um að hafa framið verknaðinn, og við og þjóð okkar getum ekki tekið ábyrgð á svo voveiflegum atburðum. Þeim verður erfitt að gleyma.

Það hefur verið erfitt fyrir okkur að vera hluti af þessum hræðilegu atburðum og sumir okkar hafa þurft að fara heim. Við erum mjög þakklátir fyrir að hafa fengið aðhlynningu frá sálfræðingi og frá sjálfboðaliðum og við vonumst til að geta snúið aftur til vinnu okkar og daglegs lífs.

Á þessum sorglegu og erfiðu tímum viljum við taka fram, að viðmót Íslendinga til okkar hefur ekki breyst og er hlýtt sem fyrr.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert