Píratar fordæma tilskipanir Trumps

Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, hefur kallað eftir umræðum við …
Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, hefur kallað eftir umræðum við utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þingflokkur Pírata fordæmir nýlegar tilskipanir Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, og lýsir yfir þungum áhyggjum af aðgerðum hans og ummælum frá því hann tók við því embætti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokknum.

Segir þar að vegna þessa hafi Píratar beðið um sérstakar umræður við utanríkisráðherra, varðandi stjórnmálastöðuna í Bandaríkjunum. Píratar standi fyrir mannréttindi og mannúð óháð landamærum, og hafni alfarið þeirri einangrunarhyggju og óttastjórnmálum sem Donald Trump og fleiri stjórnmálamenn vestra hafi boðað.

„Þingflokkur Pírata telur mikilvægt að íslensk stjórnvöld fordæmi tilskipun Bandaríkjaforseta um bann við komu flóttamanna og innflytjenda frá tilteknum svæðum, sem brýtur berlega í bága við grunnreglu alþjóðlegra mannréttindalaga um að allir skuli jafnir fyrir lögum og að ekki megi mismuna fólki á grundvelli þjóðernis, uppruna eða trúarbragða,“ segir í tilkynningunni.

Mismunun af þessu tagi er þá sögð fela í sér skýrt brot á alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, sem og stjórnarskrá Bandaríkjanna sjálfra.

Bjóði flóttamennina sérstaklega velkomna

„Þá vill þingflokkur Pírata beina þeim tilmælum til íslenskra stjórnvalda að fara að fordæmi forseta Kanada og annarra leiðtoga vestrænna ríkja að bjóða sérstaklega velkomna til Íslands flóttamenn sem hafa verið vísað frá Bandaríkjunum.

Þingflokkur Pírata fordæmir jafnframt þöggun bandarískra stjórnvalda gagnvart vísindasamfélaginu, sem felst m.a. í tilmælum þeirra til opinberra stofnana og starfsmanna þeirra sem fjalla um loftslagsvá.

Sömuleiðis lýsir þingflokkurinn yfir þungum áhyggjum af versnandi stöðu kvenréttinda í Bandaríkjunum, sér í lagi með tilliti til aðgengis kvenna að getnaðarvörnum og þungunarrofi.“

Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, hefur kallað eftir sérstökum umræðum á Alþingi við utanríkisráðherra, Guðlaug Þór Þórðarson, um stjórnmálaástandið í Bandaríkjunum. Umræðurnar munu fara fram á Alþingi á morgun, þriðjudag, klukkan 14.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert