Mega ekki rannsaka leynireikninga

Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi.
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hæstiréttur sneri í vikunni úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að skipta­stjóri dán­ar­bús Ingvars Helga­son­ar og Sig­ríðar Guðmunds­dótt­ur mætti láta er­lenda rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið K2 (áður Kroll) fram­kvæma könn­un á er­lend­um reikn­ing­um sem kunna að vera í eigu bús­ins.

Börn Ingvars og Sigríðar hafa deilt um könnunina og var úrskurður héraðsdóms frá því í síðasta mánuði kærður til Hæstaréttar. 

Fjallað var um málið í Kastljósi í apríl í fyrra í tengslum við Panama-skjölin. Þar kom fram að erf­ingj­ar Sig­ríðar og Ingvars deildu um hvort eign­ir vantaði í dán­ar­búið. Júlíus Vífill Ingvarsson og Guðmundur Ágúst Ingvarsson lögðust gegn því að rannsóknin færi fram. Þeir töldu kostnað við slíkt of mikinn og vilja að systkinin sem vilja slíka rannsókn greiði fyrir hana.

Júlíus hefur tjáð sig um málið við mbl.is auk þess sem hann sendi frá sér yfirlýsingu eftir að málið kom upp. Sagði hann meðal annars umfjöllun Kastljóss byggða á rangfærslum.

Aðeins orðrómur sem liggur fyrir

Telur Hæstiréttur að af gögnum málsins verði ekki ráðið að nokkuð annað liggi fyrir en orðrómur um að Ingvar Helgason hafi átt bankareikninga erlendis þegar hann andaðist á árinu 1999. Þannig virðist ekkert hafa verið upplýst um í hvaða löndum eða bönkum slíkir reikningar gætu hafa verið eða um innstæður á þeim. Samkvæmt fundargerðum frá áðurnefndum skiptafundum gerði enginn erfingi kröfu um að skiptastjóri gripi til aðgerða til að kanna þetta frekar.

Að þessu gættu voru engin efni til að skiptastjóri tæki af sjálfsdáðum ákvörðun um að ráðast á kostnað dánarbúsins í umfangsmikla rannsókn. 

Júlíus Vífill sagði af sér sem borgarfulltrúi í kjölfar umræðu um Panama-skjölin en í gögnunum var að finna upplýsingar um eignarhald hans á aflandssjóðnum Silwood Foundati­on. Var hann af hluta systkinanna sakaður um að geyma á reikningum sínum fjár­muni í eigu for­eldra sinna.

Júlíus og Guðmundur segja að hin systkinin hafi leitað þessara fjármuni með K2 síðan í september 2015 eða jafnvel í yfir áratug, án árangurs. 

Dómur Hæstaréttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert