Vannýttar lóðir ríkisins fari í uppbyggingu

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur. mbl.is/Golli

Eitt mesta óheillaskref sem stigið hefur verið í húsnæðissögu þjóðarinnar var þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gekk milli bols og höfuðs á verkamannabústaðakerfinu um síðustu aldamót. Þetta segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, í vikulegum pistli sínum í dag.

„Það hafði byggst upp á meira en hálfri öld og veitt þúsundum fjölskyldna öruggt skjól. Ekkert var sett fram í staðinn. Markaðurinn átti að leysa málið. Þetta voru alvarlegar villigötur sem samfélagið er ennþá að súpa seyðið af,“ skrifar Dagur í framhaldinu.

Þá segir hann að í borgarráði í vikunni hafi orðið þau tímamót, að úthlutað hafi verið fyrstu lóðunum til samstarfsverkefnis borgarinnar og verkalýðshreyfingarinnar við uppbyggingu hagkvæms leiguhúsnæðis án hagnaðarsjónarmiða.

Nýir verkamannabústaðir í breyttri mynd

„ASÍ og BSRB hafa stofnað húsnæðisfélag sem byggja mun 1.000 leiguíbúðir í Reykjavík á næstu fjórum árum. Lóðirnar fyrir fyrstu íbúðirnar verða við Móaveg í Grafarvogi, Urðarbrunn í Úlfarsárdal og Hallgerðarveg við Kirkjusand en alls munu um 300 íbúðir rísa á þessu reitum. Næstu lóðum til verkefnins verður úthlutað síðar á þessu ári.

Reykjavíkurborg og ríkið leggja fram stofnframlög vegna verkefnanna á grundvelli laga sem loksins voru samþykkt í haust. Ég bind miklar vonir við þessa uppbyggingu sem segja má að séu hinir nýju verkamannabústaðir í breyttri mynd.“

Dagur segist þá telja að staðan á húsnæðismarkaði kalli á að ríki og Reykjavíkurborg efni til samstarfs um uppbyggingu, í þágu ungs fólks sem vilji kaupa húsnæði en eigi ekki möguleika á því í núverandi stöðu.

Nýbyggingar rísa í Urriðaholti.
Nýbyggingar rísa í Urriðaholti. mbl.is/Eggert

Markaðurinn leysi ekki vandann einn og sér

„Í mínum huga mun markaðurinn ekki leysa þetta verkefni einn og sér, frekar en að hann hafi komið í stað verkamannabústaðarkerfisins á sínum tíma. Ríki og borg geta lagt fram lóðir og svæði, auk þess sem huga þarf að regluverki sem miðar að þvi að íbúðirnar verði reistar og seldar án hagnaðarsjónarmiða.

Slík fordæmi eru þekkt þegar íbúðir fyrir eldri borgara eru annars vegar. Þetta þyrfti að útfæra vandlega og gætu þetta verið söluíbúðir eða einhverskonar kaupleigu- eða búseturéttaríbúðir, eða blanda af þessu þrennu. Markmiðin væru þau sömu og með verkamannabústöðunum á sínum tíma, öruggt þak yfir höfuðið,“ skrifar Dagur.

Bendir hann þá á að einnig sé mikilvægt að umrædd verkefni komi til viðbótar við samstarf um byggingu 2.500-3.000 leigu- og búseturéttaríbúða, sem unnið sé að í Reykjavík, og sé lykilatriði til að gera húsnæðismarkaðinn betri.

Óskir borgarinnar ítrekaðar

„Í þessu samhengi má bæta við að í borgarráði í vikunni var lagt fram bréf sem ég sendi félags- og fjármálaráðherra til að ítreka óskir borgarinnar um að vannýttar lóðir sem ríkið hefur haft yfir að ráða innan borgarmarkanna verði látnar renna til uppbyggingar hagkvæms íbúðarhúsnæðis.

Þær eru á góðum stöðum og á þessum svæðum gætu risið allt að 800 íbúðir. Margar lóðanna henta sérstaklega vel fyrir stúdentaíbúðir eða söluíbúðir fyrir ungt fólk, eins og nefnt var hér að ofan.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert