73% þeirra gistu

Ferðamenn eyddu að meðaltali rúmlega 13.300 krónum á sólarhring á …
Ferðamenn eyddu að meðaltali rúmlega 13.300 krónum á sólarhring á Húsavík. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ferðaþjónustutengd velta í Mývatnssveit árið 2015 nam rúmlega þremur milljörðum og 73% erlendra ferðamanna sem heimsóttu Höfn í Hornafirði gistu á svæðinu og meðalútgjöld ferðamanna á Húsavík nam rúmlega 13.300 krónum á sólarhring.

Þetta er á meðal niðurstaðna sem fram koma í nýútgefnum skýrslum Rannsóknamiðstöðvar ferðamála (RMF).    

Rannsóknirnar beindust að ferðavenjum og útgjöldum erlendra gesta á fjórum stöðum landsins sumarið 2015. Fyrrgreindir þættir voru kannaðir með ferðavenjukönnun á Siglufirði, Húsavík, Höfn í Hornafirði og í Mývatnssveit. Út frá niðurstöðum könnunarinnar var svæðisbundið umfang ferðaþjónustunnar á þessum svæðum áætlað, segir í fréttatilkynningu en hægt er að lesa nánar um rannsóknirnar á vef atvinnuvegaráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert