Löggæslukostnaður sem lögreglan á Norðurlandi eystra innheimti vegna Síldarævintýrisins á Siglufirði, sem haldið var síðasta sumar, hefur verið felldur niður af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Fréttir mbl.is:
Verður ævintýrið haldið í óleyfi?
Gjaldtaka lögreglu sögð í bága við lög
Síðasta sumar leit allt út fyrir að hátíðin myndi hefjast þrátt fyrir að lögreglan hefði ekki gefið henni jákvæða umsögn fyrir sýslumanni. Slík umsögn er forsenda útgáfu skemmtanaleyfis.
Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, sagði í samtali við mbl.is að bærinn hefði, lögum samkvæmt, sótt um tækifærisleyfi hjá sýslumanni.
„Hann sendi síðan málið til umsagnar lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, sem nú hefur gefið neikvæða umsögn. Fyrir jákvæðri umsögn setur hann það skilyrði að bærinn borgi löggæsluskatt upp á 180 þúsund krónur,“ sagði Gunnar og bætti við að bærinn hefði hafnað því þar sem ekki lægi fyrir lagastoð fyrir slíkri gjaldheimtu.
„Það toppaði svo allt saman þegar aðstoðarlögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hringdi í deildarstjórann okkar og hótaði að hann myndi loka á hátíðina.“
Svo fór að samkomulag náðist um að fresta innheimtu gjaldsins þar til ráðuneytið myndi úrskurða um lögmæti hennar.
Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Akureyri, sagðist þá vonast til að úrskurður ráðuneytisins yrði leiðbeinandi fyrir bæjarhátíðir í landinu.