Ekkert hefur enn náðst í skipuleggjendur maraþonhlaups sem hefur verið auglýst og rukkað fyrir í gegnum síðuna Alpine High Events sem átti að fara fram í júlí í Vík í Mýrdal. Þátttakendur sem höfðu skráð sig í gegnum fyrirtækið EventBride, sem annaðist sölu á viðburðinn, hafa þó fengið endurgreitt.
Eigendur EventBride hafa heldur ekki náð í forsvarsmenn Alpine High Events og tekið viðburðinn úr sölu. „Þeir hafa að öllum líkindum tekið kostnaðinn á sig,“ segir Gumundur Kristinsson eigandi vefsíðunnar runninginiceland.com. Erlendir hlauparar sem höfðu skráð sig til leiks höfðu sett sig í samband við Guðmund og lýst áhyggjum sínum af því að hlaupið væri mögulega svikamylla.
Fyrir stuttu var viðburðinum seinkað fram á næsta ár eða til 7. júlí árið 2018 á heimasíðunni. Þeim sem höfðu skráð sig var ekki tilkynnt um þessar breytingar frekar en nokkuð annað frá forsvarsmönnum hlaupsins sem bendir til þess að um svikamyllu sé að ræða.