Krapi er á nokkrum leiðum á Reykjanesi. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut, á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Krapi er á Mosfellsheiði og hálka á Lyngdalsheiði og hálkublettir eru í uppsveitum á Suðurlandi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Hálkublettir eru sumstaðar á Vesturlandi. Snjóþekja og éljagangur er á Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum eru vegir auðir en hálkublettir eru á Mikladal og Hálfdán.
Á Norðurlandi eru vegir auðir.
Hálka, krapi og hálkubletttir eru á fjallvegum á Austurlandi og sumstaðar éljagangur.
Hálkublettir eru sumstaðar á Suðausturlandi.