Gagnrýna vinnubrögð ríkisstjórnarinnar

Frá fundinum í morgun.
Frá fundinum í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fulltrúar Vinstri grænna, Framsóknar, Pírata og Samfylkingar í allsherjar- og menntamálanefnd gagnrýna harðlega þau vinnubrögð sem ríkisstjórnin hefur viðhaft við sameiningu Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans.

„Á opnum fundi nefndarinnar í morgun gat mennta- og menningarmálaráðherra ekki staðfest að réttindi starfsmanna FÁ yrðu tryggð ef af yfirtöku Tækniskólans yrði og að nemendur skólans bæru engan skaða af framkvæmdinni,“ segir í tilkynningu.

„Fram kom á fundinum að athugun á yfirtöku Tækniskólans á starfsemi FÁ fór af stað strax í febrúar, þ.e. áður en ríkisstjórnin lagði fram fjármálaáætlun sína, þar sem hvergi er minnst á þessar fyrirætlanir. Þá þagði ráðherrann um áformin þegar staða starfs- og verknáms var rædd í þingsal 24. apríl sl.“

Kristján Þór Júlíusson, menntamálaráðherra, var gestur á fundi allsherjar- og …
Kristján Þór Júlíusson, menntamálaráðherra, var gestur á fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis í morgun. Rætt var um mögulega sameiningu FÁ og Tækniskólans. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í tilkynningunni segir einnig að á fundinum hafi ráðherra staðfest að hafa kynnt stjórnarþingmönnum um áformin áður en Ríkisútvarpið hafi sagt þjóðinni og þingmönnum stjórnarandstöðunnar frá málinu. „Erfitt reyndist að fá skýr svör um ýmis álitaefni, eins og t.a.m. hvaða lagastoð ráðherrann telji sig hafa í málinu," segir einnig í tilkynningunni. 

„Minnihlutinn gagnrýnir að í stað þess að ráðast í heildarstefnumörkun um framhaldsskólastigið, hafi aðeins yfirtaka Tækniskólans á FÁ orðið fyrir valinu. Það liggur fyrir að hér er um að ræða pólitíska ákvörðun um að einkavæða hluta framhaldsskólakerfisins, því enn hafa ekki komið fram nein fagleg eða rekstrarleg rök að baki valinu á þessum tilteknu skólum.

Í stað þess að ráðherrann fylgi yfirlýstum eigin áherslum um eflingu verk- og starfsnáms virðist ætlunin að gefast strax upp fyrir verkefninu með því að veikja enn frekar opinbert verk- og starfsnám með yfirtöku Tækniskólans á FÁ.

Minnihlutinn átelur það að ráðherrann stefni málinu í ófrið með því að halda því leyndu eins lengi og raun ber vitni. Það er mikilvægt að ákvarðanir um meiriháttar stefnubreytingar í menntakerfinu séu teknar fyrir opnum tjöldum með aðkomu kennara og nemenda og umræðu á vettvangi þingsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert