Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir karlmanni sem grunaður er um tilraun til manndráps eða stórfellda líkamsárás með að hafa ítrekað stungið annan mann í brjóst og handlegg þegar þeir voru um borð á hollensku skipi. Er talið að fórnarlambið hafi gert athugasemd við reykingar hins mannsins í matsal skipsins.
Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn nær til 5. júlí eða þangað til maðurinn verður fluttur úr landi.
Hollensk yfirvöld eru með lögsögu í málinu vegna þess að atvikið gerðist um borð í hollensku skipi og sendu framsalsbeiðni vegna þess hingað. Dómsmálaráðuneytið féllst á þá beiðni þeirra. Hafði maðurinn verið eftirlýstur af hollenskum yfirvöldum í Schengen-upplýsingakerfinu.
Maðurinn var handtekinn 7. maí og hefur áður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Var meint árás gerð tveimur dögum áður um borð í hollensku gámaflutningaskipi. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur með þyrlu bresku strandgæslunnar á sjúkrahús, með stungusár á brjósti og í handlegg.