Hveragerðisbær hefur ákveðið að öll börn í grunnskólanum í Hveragerði fái ókeypis námsgögn þegar skólastarf hefst í haust. Ákvörðun um þetta var tekin við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 og samþykkt af öllum bæjarfulltrúum.
Í tilkynningu frá bæjarfélaginu kemur fram að þetta sé liður í því að gera Hveragerðisbæ að betri búsetukosti fyrir barnafjölskyldur.
Nokkur önnur bæjarfélög hafa tekið samskonar ákvörðun, en áður hefur verið greint frá því að bæjarstjórnir í Reykjanesbæ og í Mosfellsbæ hafi ákveðið að öll nauðsynleg námsgögn í grunnskólum verði ókeypis fyrir skólabörn.