Fannst heill á húfi

Maður sem leitað var á Kársnesi og lýst eftir í nótt er fundinn heill á húfi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan lýsti eftir 23 ára gömlum karlmanni eftir miðnætti í nótt en hans hafði verið saknað frá því síðdegis í gær. 

Á sjötta tímanum í morgun kom maðurinn fram heill á húfi og þakkar lögreglan öllum þeim sem veittu aðstoð við leitina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert