Þrifum á Grunnskólanum í Hveragerði lokið

Skátahópurinn erlendi var sendur í einangrun í skólabyggingu í Hveragerði. …
Skátahópurinn erlendi var sendur í einangrun í skólabyggingu í Hveragerði. Sótthreinsun á henni er nú lokið. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Þrifum á sóttvarnarstöðinni í Grunnskólanum í Hveragerði lauk í gærkvöldi. Komið var á fót fjöldahjálparstöð í grunnskóla bæjarins fyrir helgi eftir að 67 skátar sem dvalið höfðu á Úlfljótsvatni smituðust af nóró-veirunni.

Yfir 170 skátar voru fluttir í kjölfarið í fjöldahjálparmiðstöðina þar sem þeir dvöldu um helgina, á meðan þeir voru í sóttkví.  

Í fréttatilkynningu frá Rauða krossinum á Íslandi segir að þrifum á sóttvarnarstöðinni hafi lokið í gærkvöldi. Allt hafi verið sótthreinsað, hátt og lágt, og menguðum hlutum fargað, en sérþjálfað starfsfólk hafi séð um þrifin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert