Vinstri vængurinn að styrkjast

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, býr sig undir …
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, býr sig undir beina útsendingu á RÚV. mbl.is/Eggert

„Við bætum við okkur í öllum kjördæmum, nema Norðvestur,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, í beinni útsendingu á RÚV. Hún sagði að tölurnar, eins og þær eru núna, væru í takt við kannanir föstudagsins.

Hún sagði að vinstri vængurinn  væri að styrkjast í íslenskum stjórnmálum, og vísaði til stuðningsins við VG og Samfylkinguna. „Staðan er ný og það eru átta flokkar á þingi. Þetta verður öðruvísi þing.“

Katrín minnti á að hún hefði sagt að stjórnmálamenn þyrftu að breyta því hvernig þeir ynnu saman á Alþingi. „Þessi staða mun reyna verulega á okkur til að breyta vinnubrögðunum,“ sagði hún.

Hún sagði að markmiðið ætti að vera að stunda stjórnmál sem myndu ekki ala af sér pólitískan óstöðugleika.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert