Varað við sjósundi vegna gerlamengunar

Enn stendur yfir viðgerð í dælustöðinni við Faxaskjól að sögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá Veitum er áætlað er að henni ljúki í dag.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur tekið sýni á völdum stöðum í nágrenni dælustöðvarinnar meðan á viðgerð hefur staðið. Niðurstöður sem bárust Heilbrigðiseftirlitinu í dag 27. nóvember vegna sýna sem tekin voru 24. nóvember, sýna hækkun á gerlamagni í nágrenni dælustöðvarinnar eins og við var að búast. Þann dag sýndu sýnin einnig nokkra hækkun á gerlamagni á baðstaðnum í Nauthólsvík. Aðstæður við sýnatöku 24. nóvember voru óhagstæðar veðurfarslega, m.a. mikið upprót sjávar og mikið af fugli á sýnatökustöðum, að því er segir í tilkynningu frá eftirlitinu.

Ekki er hægt að staðfesta orsök tilfallandi mengunar í Nauthólsvík þennan dag. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mælir því ekki með sjósundi í Fossvogi í dag og á morgun þó að aðstæður núna séu ágætar, lygnt og bjart. Sýni verða tekin aftur í dag. 

Hægt er að fylgjast með upplýsingum hér.

Athugið að endanlegar niðurstöður liggja fyrir tveimur til þremur sólarhringum eftir sýnatöku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert