Þorgerður endurkjörin með 95,3% atkvæða

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var endurkjörin formaður Viðreisnar á landsþingi flokksins sem fram fer um helgina með 95,3 prósentum greiddra atkvæða. Þingið er haldið í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ undir yfirskriftinni Ruggum bátnum.

Þorgerður Katrín var að vonum þakklát fyrir stuðninginn. „Takk fyrir þennan eindregna stuðning. Hann er mér ákveðið veganesti sem brýnir mig áfram í rugga bátnum með ykkur. Hlakka til að vinna með ykkur, fyrir okkur öll til að gera samfélagið okkar betra. Við getum gert betur, við höfum leiðirnar og lausnirnar. Fram undan eru verkefni sem bíða okkar. Við förum héðan vel nestuð. Ný forysta með sterkt umboð mun skila góðum árangri,“ sagði Þorgerður Katrín meðal annars í þakkarræðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert