Gangbrautarvarsla verður á Hringbraut

Gangbrautarvarsla á Egilsstöðum á dögunum. Slíkt er viðhaft víða um …
Gangbrautarvarsla á Egilsstöðum á dögunum. Slíkt er viðhaft víða um bæ í Reykjavík á morgnana. Ljósmynd/VÍS

Héðan í frá verður gangbrautarvarsla við gangbraut þá sem liggur yfir Hringbraut við gatnamótin við Meistaravelli. Þar varð slys, og ekki í fyrsta skipti, og er þessi ákvörðun viðbrögð borgaryfirvalda við því.

Staðsetning gangbrautarinnar á kortinu.
Staðsetning gangbrautarinnar á kortinu. Kort

Sagt var frá því að íbúar Vesturbæjarins gagnrýndu í Facebook-hópi sínum harðlega aðgerðarleysi yfirvalda. Úr því verður nú bætt, í það minnsta fram á vor, uns frekari aðgerðir líta dagsins ljós.

Gæslan hefst við upphaf hvers skóldags, segir í tilkynningu sem Reykjavíkurborg sendi út. Þar segir jafnframt að boðað verði til samráðsfundar í næstu viku um málið og í framhaldi af því verði ráðist í meira afgerandi aðgerðir í samvinnu við Vegagerðina, veghaldara Hringbrautar.

„Það verður að lækka hámarkshraðann í götunni og bæta öryggi gangandi vegfarenda við allar gönguþveranir. Það skilar okkur mestum árangri ásamt því að bæta lýsinguna í götunni. Það verður einfaldlega ekki unað lengur við núverandi ástand, öryggi barna er ofar öllu,“ er haft eftir Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur borgarfulltrúa Pírata í tilkynningu frá borginni.

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags- og samgönguráðs …
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, skrifar undir tilkynninguna um efnið. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert